Sálmabók

587. Ó, Drottinn Guð, ég lofa dásemd þína

Trúarlífið - Í fylgd með Kristi

hymn notes
1 Ó, Drottinn Guð, ég lofa dásemd þína sem dag hvern leggur þú í hendur mér. Ég þakka lífið, vernd og vegferð mína og vil í trú og auðmýkt fylgja þér. :,: Þá syngur, Guð minn, sála mín til þín! Þú mikill ert! Þú mikill ert! :,: 2 Ég horfi yfir það sem hönd þín gefur og hugsa um það allt sem skapar þú. Ég heyri þrumur, veit hvar sólin sefur og sé hve nærri máttur þinn er nú. Þá syngur, Guð minn ... 3 Af fjallsbrún horfi yfir fagra dali við fuglasöng og hljóðan vængjaslátt og lækjarnið er blærinn ljúfi, svali þar lofar Drottins visku, náð og mátt. Þá syngur, Guð minn ... 4 Þá man ég hvað Guðs gæska varð að þreyja er gaf sinn son, sem byrðar mínar ber, og synda minna vegna vildi deyja en vekur mig til lífs á ný með sér. Þá syngur, Guð minn ... 5 Og loks um síðir þegar Kristur kemur og kallar mig og segir: Hjá mér vert, í auðmýkt lýt ég honum öllu fremur og elsku hans: Ó, Guð, þú mikill ert! Þá syngur, Guð minn ...


T Carl G. Boberg 1885 – Stuart W.K. Hine 1949 – Kristján Valur Ingólfsson 2014, 2020
O Store Gud, när jag den värld beskådar
L Sænskt þjóðlag – Sanningsvitnet 1889
O store Gud, när jag den värld beskådar

Uppáhalds sálmar

Under Construction