Sálmabók

580. Þú, mikli Guð

Trúarlífið - Í fylgd með Kristi

hymn notes
1 Þú, mikli Guð, ert með oss á jörðu, miskunn þín nær en geisli á kinn. Eins og vér finnum andvara morguns, eins skynjar hjartað kærleik þinn. 2 Í dagsins iðu, götunnar glaumi, greinum vér þig með ljós þitt og frið. Hvar sem ein bæn er beðin í hljóði beygir þú kné við mannsins hlið. 3 Hvar sem er unnið hugur þinn starfar, hús vor og tæki eru þín verk. Þú vilt vér teljum vort það sem gefur viskan þín rík og höndin sterk. 4 Djúp er þín lind sem lífgar og nærir, lófinn þinn stór, vort eilífa hlé. Gjör þú oss, Kristur, Guðs sonur góði, greinar á þínu lífsins tré.


T Anders Frostenson, 1969 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
Du är i vår närhet
L Hollenskt þjóðlag – Vb. 1976
Heer onze Heer, hoe zijt Gij aanwezig

Eldra númer 22
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction