Sálmabók

578. Heilagi andi, hjálp mín og trú

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Heilagi andi, hjálp mín trú, hjarta mitt snert og opna þú, tendra þar ljós sem lýsi mér lífsins brautina heim með þér. 2 Þríeini Guð í hæstri hæð, hjá mér þú ert í minni smæð, vermdu og blessa brjóstið mitt, berðu í hús mitt ljósið þitt. 3 Hugur og tunga, allt sem er, eilífa lofgjörð færi þér, verk mín og dagfar vitni' um þig, vegsami þig sem elskar mig.


T Sigurbjörn Einarsson, 2008 – Vb. 2013
L Michael Bojesen 2005 – Vb. 2013
Världen har rämnat. Själen är stum

Eldra númer 862
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction