Sálmabók

577. Hver getur vakað um heimsins nótt

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Hver getur vakað um heimsins nótt? Hver trúað heims í myrkri? Hver styður veikan og stendur vörð? Vilja þinn, Guð, lát verða' á jörð. Veit oss að fylgja þér, Guð. 2 Náungans byrði æ bera þarf, bróður að sýna mildi. Annars rétt sækja er sverfur að. Hef upp þín tákn á hverjum stað! Hjálpa' oss að fylgja þér, Guð. 3 Drottinn, sem vakir um dimma nótt, Drottinn, sem leiðir úr myrkri. Drottinn, sem gefur oss dag og ár: Eins þegar henda áföll sár erum við hjá þér, ó, Guð. Amen, amen.


T Svein Ellingsen 1975 – Kristján Valur Ingólfsson 2012 – Vb. 2013
Noen må våke i verdens natt
L Trond H.F. Kverno 1975 – Vb. 2013
Noen må våke i verdens natt

Eldra númer 916
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction