Sálmabók

574. Mikils ætti ég aumur að akta

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Mikils ætti ég aumur að akta ást og miskunn Guðs míns góða, að hann sendir oss að vakta engla sína burt frá voða. Hollum þessum hans höfðingjum hér vill oss Guðs vesalingum mikil oft liggja makt á. 2 Guð faðir þá gáfu sæta, góðan son sinn til vor sendi, Guðsson lausn og liðsemd mæta líkn oss veitti' af sinni hendi. Helgur andi' oss huggar feginn, hjálpin hans bregst engan veginn. Guð vill enn brest vorn bæta. 3 Ef oss þetta ei nóg þætti eykur Guð á virðing slíka, englum sínum hann ofan á bætti, oss ljær hann þá dyggðaríka. Þannig nú með þýtt samheldi þjónar oss allt himneskt veldi. Oss það forundra ætti. 4 Dýrðleg þessi Drottins gæði daglega þiggja heimsins þjóðir. Þó er ei minna það hjálpræði að þjóna oss slíkir kappar góðir sem í kringum sjálfan standa soninn, föður og helgan anda, skærir með skýrleiks æði. 5 Guð minn bauð þeim göfuglegum geyma að mér í ferðum mínum, öllu starfi og útvegum einnig bera' á höndum sínum svo við stein ég steyti' ei fæti, stórum engum meiðslum mæti. Illt vér ei iðka megum. 6 Svo mun koma á seinasta dómi sjálfur Guð með engla alla, láta þá með lúðrahljómi lýð rétt kristinn fyrir sig kalla. Af veraldar vindum fjórum vel mun þá með blíðleik stórum heilsa oss Herrann frómi.


T Ólafur Jónsson á Söndum fyrir 1627 – Hymnodia Sacra 1742
Englavísur
L Kvæðabók Ólafs Jónssonar á Söndum fyrir 1627 – Hymnodia Sacra 1742

Uppáhalds sálmar

Under Construction