Sálmabók

573. Starfa því nóttin nálgast

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Starfa því nóttin nálgast, nota vel æviskeið, ekki þú veist nær endar ævi þinnar leið. Starfa því aldrei aftur ónotuð kemur stund, ávaxta því með elju ætíð vel þín pund. 2 Starfa því nóttin nálgast, notaðu dag hvern vel, starfa með ugg og ótta, arðinn Drottni fel. Starfa, þú stendur eigi styrkvana' í heimi hér. Vanti þig ekki viljann vís er hjálpin þér. 3 Starfa því nóttin nálgast, nóg hér að vinna er, Guð þér af gnægtum sinnar gæsku kraftinn lér. Starfa með bæn og biðlund, blessast þá allt þitt ráð, víst mun þeim vel er biður veitast allt af náð. 4 Starfa því nóttin nálgast niðdimm er hvílist hold dauðans í dróma bundið djúpt í kaldri mold. Starfa í trú, þá styður sterk þig og voldug hönd. Herranum Jesú hæstum helga líf og önd.


T Anna L. Walker 1854 – Jón Helgason – Vb. 1924
Work, for the night is coming
L Lowell Mason 1864 – Ssb. 1936
DILIGENCE / WORK SONG

Eldra númer 361
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction