Sálmabók

569. Þinn andi, Guð

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Þinn andi, Guð, til Jesú Krists mig kalli og komi mér á hina réttu leið svo ætíð ég að brjósti hans mér halli í hverri freisting, efa, sorg og neyð. 2 Þinn andi, Guð minn, upp mig sífellt lýsi með orði þínu, ljósi sannleikans, í lífi' og dauða það mér veginn vísi til vors hins þráða, fyrirheitna lands. 3 Þinn andi, Guð, mitt endurfæði sinni og í mér skapi hjarta nýtt og gott er aftur verði eftir líking þinni og ávallt beri þinnar myndar vott. 4 Þinn andi, Guð, mitt helgi' og betri hjarta og hreinsi það frá allri villu' og synd og höll þar inni byggi dýra' og bjarta er blíða sífellt geymi Jesú mynd.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Andreas P. Berggreen 1856 – PG 1878
Tænk, når engang den tåge er forsvunden

Eldra númer 332a
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction