Sálmabók

568. Þú, Drottinn, átt það allt

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Þú, Drottinn, átt það allt sem öðlumst vér á jörð. Hver gjöf og fórn sem færum vér er fátæk þakkargjörð. 2 Vor eign og allt vort lán þér einum heyrir til. Þótt gætum vér það gefið allt vér gerðum engin skil. 3 Hér svíða hjartasár, hér sveltur fátækt barn, og vonarsnauður villist einn um veglaust eyðihjarn. 4 Að létta bróður böl og bæta raunir hans, að seðja, gleðja, græða mein sé gleði kristins manns. 5 Vér trúum á þitt orð þótt efi myrkvi jörð að miskunn við hinn minnsta sé þér, mannsins sonur, gjörð.


T William W. How um 1858 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
We give Thee but Thine own
L William H. Monk 1861 – Vb. 1976
ST. ETHELWALD

Eldra númer 374
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction