Sálmabók

567. Það skín ekkert ljós

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Það skín ekkert ljós inn í skammdegismyrkrið og skuggann sem býr mér við hlið. Ég leita en finn enga, finn enga leið :,: fyrir ljósið mitt. :,: :,: Jesús, kom þú með þitt. :,: 2 Víst þekki ég ylinn sem sólin þín sendir en samt finnst mér alls staðar kalt. Ég kalla en kemst ekki, kemst ekki að :,: með kærleika minn. :,: :,: Kristur, kom þú með þinn. :,: 3 Þú kemur í myrkrið og kuldann, Drottinn, og kveikir þar ljós þitt og yl. Þú finnur og elskar það, elskar það allt :,: og með aumum býrð. :,: :,: Drottinn, kom þú með dýrð. :,:


T Kristján Valur Ingólfsson 1993 – Sb. 1997
L Hjálmar H. Ragnarsson 1995 – Sb. 1997

Eldra númer 708
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction