Sálmabók

566. Frá þér er, faðir, þrek og vit

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Frá þér er, faðir, þrek og vit, öll þekking, ást og trú. Kenn oss að þakka einum þér það allt sem gefur þú. 2 Og allt sem hver úr býtum ber er bróðurskerfur hans sem bæta skal í þökk til þín úr þörfum annars manns. 3 En lát þann dag oss ljóma brátt er losna böndin hörð og réttur þinn og ríki fær öll ráð á vorri jörð. 4 Þá allt sem lifir lofar þig og lýtur þinni stjórn og brosir heiðum himni við í helgri þakkarfórn.


T Charles Kingsley um 1871 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1972
From thee all skill and science flow
L Pierre Davantès 1562 – Johann Crüger 1653 – Vb. 1976
GRÄFENBERG / Nun danket all und bringet Ehr

Eldra númer 346
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction