Sálmabók

565. Færðu mér ljósið

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Færðu mér ljósið langt og mjótt, logann granna sem teygir sig :,: út í alheimsdjúpa nótt.:,: 2 Veittu mér blessun, bænheyr skjótt, birtan þín skæra fylgi mér :,: út í alheimsdjúpa nótt.:,: 3 Auktu mér dirfsku, afl og þrótt, ávallt mér sendu kraftinn þinn :,: út í alheimsdjúpa nótt.:,: 4 Vertu mín stoð svo verði rótt, veginn lýstu á minni leið :,: út í alheimsdjúpa nótt.:,:


T Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2008 – Vb. 2013
L Sigurður Flosason 2008 – Vb. 2013

Eldra númer 918
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction