Sálmabók

564. Ó, veit mér, Guð, að vaka og biðja

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Ó, veit mér, Guð, að vaka' og biðja og vera trúr í minni stétt og sérhvern dag mitt dagsverk iðja til dýrðar þér sem Guðs barn rétt. Lát gleymast ei um ævi mér að umboðsmaður þinn ég er. 2 Lát mig það hæstan heiður virða að helga þér æ vilja minn, lát mig um dóma heims ei hirða er hæðir lög og vilja þinn. Lát dóm þinn vægan verða mér úr veröld þá er burt ég fer.


T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Georg Neumark, 1657 – PG 1861
Wer nur den lieben Gott lässt walten

Eldra númer 355
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction