Sálmabók

563. Vort líf er lán frá þér

Trúarlífið - Helgun og þjónusta

hymn notes
1 Vort líf er lán frá þér, vér lofum, Guð, þitt nafn, þú tilbjóst bæði lög og láð og ljóssins hnattasafn. 2 Vort líf er lán frá þér, þú ljóssins faðir hár, hver geisli’ á braut, hver ganga’ í þraut, hver gleði og sorgartár. 3 Vort líf er lán frá þér, ó, leið oss hverja stund og ljá oss kraft að vinna vel og vaxta gefið pund. 4 Vort líf er lán frá þér, þín líkn vort eina hrós. Hve skömm er leið í skuggans heim ef skín oss ei þitt ljós. 5 Vort líf er lán frá þér, það líður harla skjótt, og lát oss eygja ljósið þitt er lýkur dauðans nótt.


T Sigurjón Guðjónsson – Sb. 1972
L William H. Monk 1861 – Vb. 1976
ST. ETHELWALD

Eldra númer 344
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction