Sálmabók

559. Til þín, Drottinn hnatta og heima

Trúarlífið - Bæn

hymn notes
1 Til þín, Drottinn hnatta’ og heima, hljómar bæn um frið. Veittu hrjáðum, hrelldum lýðum hjálp í nauðum, sekum grið. Þegar skjálfa skorðuð fjöllin skeika flest hin dýpstu ráð, lát oss veika fá að finna fasta bjargið, þína náð. 2 Mara kvíðans mannkyn treður, mætt af þungri synd. Þjökuð veröld velkist milli vöku’ og svefns með augu blind. Lát hinn mikla lúður gjalla, leiftur sundra þokuhjúp, geisla þinnar sannleikssólar sindra’ um myrkvuð hugardjúp. 3 Bjartir englar betri heima, biðjið fyrir oss. Þú sem fyrir þjáða bræður þyrnikrýndur barst þinn kross, lát oss við hann fá og finna friðarathvarf, líknarskjól. Miskunn veit oss, mönnum sekum, mikli Guð, við dómsins stól.


T Páll V.G. Kolka – Sb. 1972
L Þorkell Sigurbjörnsson 1974 – Vb. 1976

Eldra númer 525
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction