Sálmabók

547. Nú til þín, faðir, flý ég

Trúarlífið - Bæn

hymn notes
1 Nú til þín, faðir, flý ég, á föðurhjartað kný ég, um aðstoð eg bið þig. Æ, vert með mér í verki, ég veit þinn armur sterki í stríði lífsins styður mig. 2 Ég veit að við þitt hjarta er vonarlindin bjarta sem svalar særðri önd, sem trúin himnesk heitir, sem huggun sanna veitir. Ó, rétt mér, Jesú, hjálparhönd. 3 En verði, Guð, þinn vilji þó veg þinn ei ég skilji, ég fús hann fara vil. Þó böl og stríð mig beygi hann brugðist getur eigi, hann leiðir sælulandsins til.


T Guðmundur Guðmundsson, 1892 – Vb. 1912
L Heinrich Isaac um 1495 – Nürnberg 1539 – PG 1861
Innsbruck, ich muss dich lassen / Nun ruhen alle Wälder

Eldra númer 395
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction