Sálmabók

546. Himneski faðir, hvar sem lifað er

Trúarlífið - Bæn

hymn notes
Himneski faðir, hvar sem lifað er, aldanna raðir allar lúta þér. Ver með oss í verki, viska þín og náð og þinn armur sterki allt vort styðji ráð. Lát vorn anda ljós þitt sjá, leið oss grandi öllu frá. Beri' að vanda, vertu' oss hjá, vernda fósturláð.


T Þorsteinn Gíslason – Vb. 1933
L Hymnodia Sacra 1742 – Sb. 1772 – PG 1861
Kær Jesú Kristi

Eldra númer 524
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction