Sálmabók

543a. Ó, ljóssins faðir, lof sé þér

Trúarlífið - Bæn

hymn notes
1 Ó, ljóssins faðir, lof sé þér að líf og heilsu gafstu mér og föður minn og móður. Nú sest ég upp því sólin skín, þú sendir ljós þitt inn til mín. Ó, hvað þú, Guð, ert góður! 2 Þú býr á háum himnastól og hefur skapað þessa sól og alla veröld víða, þú klæðir grösum fagra fold, þú fæðir veikan orm í mold og dýr og fuglinn fríða. 3 Þig lofa gjörvöll lífsins mál, þig lofar einkum mannsins sál, hún þekkir elsku þína. Ég veit, minn Guð, þú verndar mig, ég veit ég á að biðja þig sem tilbjóst tungu mína. 4 Þitt blessað ljósið lýsi mér svo lifi ég og fylgi þér á vísdóms vegi sönnum en auk mér þroska, dyggð og dáð svo dafni ég í Jesú náð hjá Guði' og góðum mönnum. 5 Þigg, Guð, minn faðir, hug og hönd, mitt hjarta, vilja, líf og önd svo blessuð boð þín geymi. Að treysta, hlýða, þóknast þér sé þúsund sinnum dýrra mér en fylgja holdi' og heimi.


T Matthías Jochumsson – Sb. 1886
L Niels W. Gade 1836 – JH 1885
O gode Gud, jeg takker dig / Op, glædes alle, glædes nu

Eldra númer 506
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction