Sálmabók

542. Mín er bæn

Trúarlífið - Bæn

hymn notes
1 Mín er bæn: Ég bið að Guð minn blessi alla mína daga, öllum stundum yfir vaki, ávallt leynt og ljóst mín er bæn til Guðs. Ég bið, Guð, anda þínum blástu mér í brjóst. Sköpun þín og verk, já, hús þitt ég er, líkama´ og sál í hendur fel ég þér, drauma ég á um uppskeru og laun, vertu mér hjá í gleði jafnt sem raun. Mín er bæn. 2 Hönd þín leiði mig til ljóssins, lýsi mér í myrkri heimsins. Guðs á vegum ganga vil ég, Gegnum lífið allt sólin við mér skín því sál mín verður alltaf þín þó hér sé kalt. Sköpun þín og verk …


T Magnús Þór Sigmundsson 2011 – Vb. 2013
L Magnús Þór Sigmundsson 2011 – Vb. 2013

Eldra númer 908
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction