Sálmabók

537. Ó, faðir, gjör mig lítið ljós

Trúarlífið - Bæn

hymn notes
1 Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið til hjálpar hverjum hal og drós sem hefur villst af leið. 2 Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt sem brosir öllum mót og kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót. 3 Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag sem lífgar hug og sál og vekur sól og sumardag en svæfir storm og bál. 4 Ó, faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvern sem þarf uns allt það pund sem Guð mér gaf ég gef sem bróðurarf. 5 Ó, faðir, gjör mig sigursálm, eitt signað trúarlag sem afli blæs í brotinn hálm og breytir nótt í dag.


T Matilda B. Betham-Edwards, 1873 – Matthías Jochumsson, 1901 – Vb. 1933
God Make My Life a Little Light
L Jónas Tómasson, 1936 – Vb. 1946
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós

Eldra númer 507
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction