Sálmabók

534. Ástarfaðir himinhæða

Trúarlífið - Bæn

hymn notes
1 Ástarfaðir himinhæða, heyr þú barna þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðarfaðm mig tak. 2 Náð þín sólin er mér eina, orð þín döggin himni frá er mig hressir, elur, nærir eins og foldarblómin smá. 3 Einn þú hefur allt í höndum, öll þér kunn er þörfin mín, ó, svo veit í alnægð þinni einnig mér af ljósi þín. 4 Anda þinn lát æ mér stjórna, auðsveipan gjör huga minn og á þinnar elsku vegum inn mig leið í himin þinn.


T Agnes Franz, 1876 – Steingrímur Thorsteinsson, 1917 – Vb. 1933
Lieber Vater, hoch im Himmel
L Johann F. Reichardt 1790 – JH 1906
Immer muß ich wieder lesen

Eldra númer 504
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction