Sálmabók

525. Ef þú áforma vildir

Trúarlífið - Orð Guðs

hymn notes
1 Ef þú áforma vildir eitthvað sem vandi' er á, þarfleg ráð þiggja skyldir og þig vel fyrir sjá, af því oftlega sker: Sá sem er einn í ráðum einn mætir skaða bráðum, seint þá að iðrast er. 2 En með því mannleg viska í mörgu náir skammt, á allt kann ekki' að giska sem er þó vandasamt, kost þann hinn besta kjós: Guðs orð fær sýnt og sannað hvað sé þér leyft og bannað, það skal þitt leiðarljós.


T Hallgrímur Pétursson Ps. 7
L Lyon 1557 – Sb. 1589
Helft mir Gottes Güte preisen

Eldra númer 296
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction