Sálmabók

520. Kom, helgur andi, kom með náð

Trúarlífið - Heilagur andi

hymn notes
1 Kom, helgur andi, kom með náð, í kristnum sálum stað þér bú, af himni send þín heilnæm ráð í hjörtun sem að tilbjóst þú. 2 Þú huggun ei sem hrelldum brást, hins hæsta gjöf, þú mannsins líf, þú lífsins brunnur, eldur, ást og andleg smurning, vernd og hlíf. 3 Þú óþrjótandi gjafagnótt frá Guði' um allan heim sem fer, á kristnum tungum flýgur fljótt það föðurorð sem þú oss ber. 4 Í hjörtun sannri hell þú ást, í hug og skilning ljós þitt kveik. Þitt afl sem þeim er bað ei brást, það bjargi holdsins óstyrkleik. 5 Lát freistarann ei fá oss veitt en friðinn efl í hverri grein. Ef þér vér fylgjum fær ei neitt hið fjandsamlega' oss unnið mein. 6 Þig andi, syni' og föður frá, í fullri trú vér lofum hér. Þér heilög þrenning himnum á af hjarta lofgjörð færum vér.


T Hrabanus Maurus 809 – Martin Luther 1524 – Stefán Thorarensen – Vb. 1861
Veni creator spiritus / Komm, Gott Schöpfer, Heiliger Geist
L Kempten um 1000 – Erfurt 1524 - Sb. 1589
Komm, Gott Schöpfer, Heiliger Geist

Eldra númer 329
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction