Sálmabók

505. Ó, ást, sem faðmar allt

Trúarlífið - Jesús Kristur

hymn notes
1 Ó, ást, sem faðmar allt! Í þér minn andi þreyttur hvílir sig, þér fús ég offra öllu hér, í undradjúp þitt varpa mér. Þín miskunn lífgar mig. 2 Ó, fagra lífsins ljós er skín og lýsir mér í gleði' og þraut, mitt veika skar, það deyr og dvín, ó, Drottinn minn, ég flý til þín í dagsins skæra skaut. 3 Ó, gleði' er skín á götu manns í gegnum lífsins sorgarský. Hinn skúradimmi skýjafans er skreyttur litum regnbogans og sólin sést á ný. 4 Ó, ég vil elska Kristí kross er kraft og sigur veitir mér. Að engu met ég heimsins hnoss því Herrann Jesús gefur oss það líf sem eilíft er.


T George Matheson 1882 – Sigurbjörn Sveinsson, 1931 – Sb. 1972
O Love that wilt not let me go
L Albert L. Peace 1881 – Vb. 1976
ST: MARGARET/ O Love that wilt not let me go

Eldra númer 350
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction