Sálmabók

504. Jesú nafn um aldir alda

Trúarlífið - Jesús Kristur

hymn notes
1 Jesú nafn um aldir alda unað veitir Drottins hjörð, á því tímans tönn ei vinnur, tendrar ljós á vorri jörð. Jesú nafn með undra afli allar sálir dregið fær inn að Drottins ástarhjarta, alsælunnar himni nær. Nafn þitt, Jesú, ég vil elska, Jesú nafn er huggun mín. Í hans nafni fann ég frelsi, frið sem aldrei, aldrei dvín. 2 Jesú nafn skal hærra, hærra hljóma yfir vorri jörð, Jesú nafn og ekkert annað eflir Drottins litlu hjörð, hrekur burtu hatrið blinda, hrelldum sálum veitir frið, gefur þrek og þrótt að stríða þeim sem elska réttlætið. Nafn þitt, Jesú, ég vil elska... 3 Jesú nafn með ljúfum ljóma líkt og morgunstjarna skær yfir veginn villugjarna vonarbjörtum geislum slær og er sólin aldrei framar yljar vora köldu jörð Jesú nafn um aldir alda alsæl tignar Drottins hjörð. Nafn þitt, Jesú, ég vil elska...


T David Welander 1923 – Sigurbjörn Sveinsson, 1931
Jesus' Name! Oh Let Me Sing It
L Frá Suður-Afríku (Zulu)

Uppáhalds sálmar

Under Construction