Sálmabók

502b. Ég gleðst af því ég Guðs son á

Trúarlífið - Jesús Kristur

hymn notes
1 Ég gleðst af því ég Guðs son á, hann gaf mér sig og allt um leið er bæta fátækt mína má og minni létta sálarneyð. 2 Ég gleðst af því ég Guðs son á. Hvað gjört fær mér nú heimurinn? Minn ástvin Jesús er mér hjá með allan mátt og kærleik sinn. 3 Ég gleðst af því ég Guðs son á, nú grandað fær ei dauðinn mér því brodd hans hefur brotið sá sem bróðir minn og vinur er. 4 Ég gleðst af því ég Guðs son á, hann gefa vill mér himin sinn og þangað leiða þrautum frá í þreyða friðinn anda minn. 5 Ég gleðst af því ég Guðs son á, ég gleðst, ó, Jesú minn, í þér og vil þér aldrei víkja frá en vak þú, Drottinn, yfir mér.


T Bertel Ægidius 1717 – Þorvaldur Böðvarsson – Sb. 1801 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886 – 5. v. endurkv. Sigurbjörn Einarsson 1969
Jeg er udi Jesu glad
L Carl C.N. Balle 1850 – BÞ 1903
Det kimer nu til julefest

Eldra númer 48
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction