Sálmabók

501. Þú komst að lokum

Trúarlífið - Jesús Kristur

hymn notes
1 Þú komst að lokum, langt að rekinn gestur, og líktist mynd úr ævintýrabók því margir höfðu málað þína drætti en mig þín vera sjálf á vald sitt tók. Þitt nafn menn hafa haft sem skraut, til sölu, og hjúpað með því grimmd og vígafar, mörg háreist smíð þig hefur átt að tigna en hógværð þín á öðrum brautum var. 2 Þú ert það barn úr köldum fjárhúskofa sem kólnar þegar snauður gleymdur er en vermist þegar hönd þín fær að hjálpa og hjarta mannsins opnast fyrir þér. Þú ert í hverri gröf og sorg og sári og sigrar eins og vorsins hljóði blær, þitt bros ég sé sem bjarma dags á tindum, þú bjargar þar sem engin leið er fær. 3 Þú ert það ljóð um lífið sem ég gleymdi, það ljósið sanna er minn vilji brást. Þá sveik ég mig en skuggsjá hjartans hefur samt hulda mynd sem speglar þína ást. Kom nær og vertu hjá mér, húmið kemur, en hjá þér skín mér ljós sem aldrei fer. Þitt líf er mitt, ég heyri sönginn hljóma um heiðan dag og eilíft vor með þér.


T Ylva Eggehorn 1999 ̶ Sigurbjörn Einarsson 1999 – Vb. 2013
Så kom du då till sist / Innan gryningen
L Benny Andersson 1999 – Vb. 2013
Så kom du då till sist / Innan gryningen

Eldra númer 855
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction