Sálmabók

485. Lofið vorn Drottin

Trúarlífið - Þakkargjörð fyrir gjafir Guðs

hymn notes
1 Lofið vorn Drottin, hinn líknsama föður á hæðum, lofið hann allir með söngvum og vegsemdar ræðum, lofi hann sál, lofi hann athöfn og mál, gnótt hann oss veitir af gæðum. 2 Lofið vorn Drottin, hann leiðir og verndar og styður, leysir úr nauðum og heyrir þess andvörp er biður, byggðir um lands blessaðar ástgjafir hans drjúpa sem dögg til vor niður. 3 Lofið vorn Drottin er englanna hersveitir hlýða, hans eftir skipunum stormar og eldingar bíða, dýrð honum ber, himinninn hástóll hans er, jörðin hans fótskörin fríða. 4 Lofið vorn Drottin og takið með englum hans undir, allir hann vegsamið lífs yðar gjörvallar stundir, hátt göfgið hann, Herrann vorn Guð sem oss ann, allar hann lofið á lundir.


T Joachim Neander 1679 – Hróarskeldusálmabókin 1855 – Helgi Hálfdánarson, 1873 – Sb. 1886
Lobe den Herren, den mächtigen König
L Stralsund 1665 – Halle 1741 – PG 1861
Lobe den Herren, den mächtigen König

Eldra númer 3
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 103

Uppáhalds sálmar

Under Construction