Sálmabók

483. Þú sendir, Drottinn, dögg af hæðum

Trúarlífið - Þakkargjörð fyrir gjafir Guðs

hymn notes
1 Þú sendir, Drottinn, dögg af hæðum í dropum smáum niður' á jörð að kveikja líf í köldum æðum og klaka leysa böndin hörð. Lát náðardaggar dropa þinn svo drjúpa' í mína sálu inn. 2 Þú lætur, Drottinn, ljós af hæðum hér lýsa sólargeislum í, það grundu skrýðir geislaklæðum og gulli faldar himinský. Ó, lát þú náðarljósið þitt svo lýsa skært í hjartað mitt. 3 Þú sendir, Guð, þinn son af hæðum, hann sól og dögg var allri jörð. Hann lýsir oss í ljóssins fræðum og leysir synda böndin hörð. Það ljósið prýði líf mitt allt, sú lífdögg þíði helið kalt.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Hamborg 1690 – Sb. 1801
Hvo ved, hvor naer mig er min ende

Eldra númer 31
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction