Sálmabók

481. Lof sé þér um ár og öld

Trúarlífið - Þakkargjörð fyrir gjafir Guðs

hymn notes
1 Lof sé þér um ár og öld, mikli Drottinn dýrðarinnar, dýrðar vil ég minnast þinnar, þér sé vegsemd þúsundföld. Kynslóð eftir kynslóð lofar kærleik þinn og speki' og mátt, þú sem ríkir öllu ofar, allt þú blessar, stórt og smátt. 2 Miskunnsamur mjög þú ert, ó, hve þú, minn Guð, ert góður, gæskuríkur, þolinmóður, öll þín verk það vitna bert. Öll þín verk þitt veldi róma, vegsama þitt dýrðarráð, öll þín verk þó einkum hljóma um þinn kærleik, líkn og náð. 3 Allra vona augu' á þig, þú upp hendi þinni lýkur, þú ert ætíð nógu ríkur alla' að blessa' og einnig mig. Öllum þeim sem á þig kalla allt þú lætur gott í té, frelsar þú og annast alla. Eilíft lof og dýrð þér sé.


T Valdimar Briem – Sb. 1886
L Jean B. Lully 1661 – Kingo 1674 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
Rind nu op i Jesu navn/ Sommes-nous pas trop heureux

Eldra númer 2
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 145

Uppáhalds sálmar

Under Construction