Sálmabók

479. Ég landinu þakka

Trúarlífið - Þakkargjörð fyrir gjafir Guðs

hymn notes
1 Ég landinu þakka allt líf sem það ól, ég lék mér að fíflum og smárum á hól. Og draumana alla sem dreymdi mig þá í döggvuðum bjarma ég horfi nú á. 2 Og fjöllunum þakka ég friðsemd og ró með fossum sem niða og lækjum í mó og tunglinu litla sem ljómar svo bjart og lýsir upp skammdegið hrollkalt og svart. 3 Ég þakka þér, Guð, sem að gafst þetta allt, jafnt grósku og birtu og úthafið svalt og kærleika' og von þó að veröld sé hörð, að veginn þú lýsir til friðar á jörð.


T Iðunn Steinsdóttir 2012
L Enskt þjóðlag
STOWEY / Praise God for the Harvest

Uppáhalds sálmar

Under Construction