Sálmabók

478. Í dagsins dýrðarmynd

Trúarlífið - Þakkargjörð fyrir gjafir Guðs

hymn notes
1 Í dagsins dýrðarmynd er dimmblá fjallalind, minn hugur leitar í hæðir til þín í dagsins dýrðarmynd. 2 Er sumarsólin skín og sýnir verkin þín þá þakkar allt sem andar og grær er sumarsólin skín. 3 Ég lofa land og haf, það líf sem Guð mér gaf, í vorsins yl og vetrarins byl ég lofa land og haf. 4 Sem barn með bæn í sál ég bind þá ósk í mál að allur heimur finni þinn frið sem barn með bæn í sál. 5 Þín gleðin hlý og góð mér gefi falleg ljóð sem vitni öll um einlæga trú, þín gleðin hlý og góð.


T Eygló Eyjólfsdóttir 1999 – Vb. 2013
L Gifford J. Mitchell, 1971– Vb. 2013
MOUNT / We Praise You for the Sun

Eldra númer 852
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction