Sálmabók

475. Allt hið fagra foldarskraut

Trúarlífið - Þakkargjörð fyrir gjafir Guðs

hymn notes
Allt hið fagra foldarskraut, allt fólk og dýr og lönd, allt sem skapar góður Guð er geymt í Drottins hönd. 1 Guð fæðir foldar blómin, hann fegrar urð og mel og lætur lóur syngja og ljær þeim væng og stél. Allt hið fagra ... 2 Við fjallabirtu bláa hjá bunulæk og tjörn þá sólin sest í æginn og sofna lítil börn. Allt hið fagra ... 3 Á hólnum haninn kúrir með höfuð undir væng og litlir hvuttar lúra á lágum beð með sæng. Allt hið fagra ... 4 Í vetrar köldum vindi og vorsins milda blæ, í grænum gróðri jarðar og gullslit yfir sæ. Allt hið fagra ... 5 Í skógarlundum ljúfum og lækjarbrekkum smá, þar kroppa lömb og kálfar og kisi horfir á. Allt hið fagra ... 6 Hann gaf mér eyru, augu og orð sem lofgjörð tjá, jafnt dýr og börn hann blessar og býr þeim skjól sér hjá. Allt hið fagra ...


T Cecil F. Alexander, 1848 – Kristján Valur Ingólfsson 2017
All things bright and beautiful
L William H. Monk, 1887
ALL THINGS BRIGHT AND BEAUTIFUL

Uppáhalds sálmar

Under Construction