Sálmabók

468. Fyrst var jörðin auð

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Fyrst var jörðin auð, þá var dimmt og kalt. Guð lét verða ljós og það lýsti allt. 2 Upp úr hafi steig allt hið þurra land, bylgjur féllu að, bára lék við sand. 3 Og hið fyrsta vor óx hið fyrsta tré grænt í morgundögg, veitti skjól og hlé. 4 Vindur, sól og regn, stjörnur, tungl og ský, fiskur, maur og fugl fagna yfir því. 5 Manninn gjörði Guð, bæði meyju' og svein. Annast sköpun hans, gjöra engu mein. 6 Guð, ég þakka þér að þú gjörðir mig. Líf mitt, leik og söng láttu tigna þig. Hver lína textans er sungin af forsöngvara og endurtekin af söfnuði líkt og sýnt er í nótunum og á það við um öll erindin.


T Lars Åke Lundberg 1974 – Kristján Valur Ingólfsson 2000 – Vb. 2013
Först var jorden tom
L Lars Åke Lundberg 1974 – Vb. 2013
Först var jorden tom

Eldra númer 853
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun 1. Mós. 1

Uppáhalds sálmar

Under Construction