Sálmabók

467b. Smávinir fagrir

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley! Við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. 2 Faðir og vinur alls sem er! Annastu þennan græna reit, blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. 3 Vesalings sóley! Sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt, dreymi þig ljósið, sofðu rótt.


T Jónas Hallgrímsson um 1840
L Jón Nordal 1940

Uppáhalds sálmar

Under Construction