Sálmabók

467a. Smávinir fagrir

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley! Við mættum margt muna hvert öðru´ að segja frá. Prýðið þið lengi landið það sem lifandi Guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans alls staðar fyllir þarfir manns. 2 Vissi ég áður voruð þér, vallarstjörnur um breiða grund, fegurstu leiðarljósin mér, lék ég að yður marga stund. Nú hef ég sjóinn séð um hríð og sílalætin smá og tíð, munurinn raunar enginn er, því allt um lífið vitni ber. 3 Faðir og vinur alls sem er! Annastu þennan græna reit, blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley! Sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt, dreymi þig ljósið, sofðu rótt.


T Jónas Hallgrímsson um 1840
L Atli Heimir Sveinsson 1996

Uppáhalds sálmar

Under Construction