Sálmabók

465. Í svörtum himingeimi

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Í svörtum himingeimi heiðbjört skín blá heillastjarna, dýrmæt sköpun þín. Í okkar forsjá falin er að fara með á allan hátt til dýrðar þér. Hallelúja. Hallelúja. 2 Við höfum starfað ökrum hennar á og okkur bjargir sótt í djúpin blá. Hún veitir yndi, yl og skjól og athvarf undir þinni mildu náðarsól. Hallelúja. Hallelúja. 3 En núna bráðna jöklar, brotnar ís, nú brenna skógar hér í paradís og eitur þrúgar lög og láð. Ó, ljúfi faðir, gefðu okkur þrek og ráð. Hallelúja. Hallelúja. 4 Ó, faðir, gefðu okkur vilja´ og vit að vernda hennar fagra stjörnuglit. Gefðu´ okkur kærleik, kraft og trú og kjark að standa vörð um allt sem elskar þú. Hallelúja. Hallelúja.


T Davíð Þór Jónsson 2017
L Arngerður María Árnadóttir 2017

Uppáhalds sálmar

Under Construction