Sálmabók

463. Hjálpa, Guð, í hengiflugi

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Hjálpa, Guð, í hengiflugi, hegðun vor er feigðarganga, vatn er mengað, loft og láð. Bundnir viðjum grimmrar græðgi, ginntir vélum eigin máttar jörð vér bruggum banaráð. 2 Opna, Drottinn, augun haldin að vér sjáum dómsins letur rituð á vor ríku borð. Ánauð vorrar eigingirni af oss tak og lát oss vakna, vitkast, lifna við þitt orð. 3 Blóðug jörðin brot vor grætur, brostin er vor heyrn og næmi, andinn sljór og augun blind. Bjarga, Drottinn, birta láttu, blómin hýrna, fugla kvaka, hreinsa oss við lífs þíns lind. 4 Gef oss, faðir, vit og vilja veginn þinn að sjá og fara, hríf þú oss af heljar slóð. Lífga andann, lát oss frjálsa lifa svo að jörðin finni hjá oss birt sín ljóðaljóð.


T Svein Ellingsen, 1978 – Sigurbjörn Einarsson, 1996 – Vb. 2013
Stans oss på vår vei mot stupet
L Kjell Habbestad, 2008 – Vb. 2013
Stans oss på vår vei mot stupet

Eldra númer 845
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction