Sálmabók

462. Þitt orð hefur skapað

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Þitt orð hefur skapað það allt sem er fætt í aldanna grunnlausa hyl. Allt líf, Guð, vor faðir, er þegið af þér sem þekkir hvert fræ sem er til. 2 Þú vilt að vér elskum og virðum það líf sem vekur þín gjöfula hönd en vér höfum sært það og svívirt og lýtt og saurgað öll höf þín og lönd. 3 Nú stöndum vér trúlaus á tæpustu nöf í töfrum vors synduga valds, ó, varna oss frekar að vinna það tjón sem verður ei metið til gjalds. 4 Lát regnbogann blíða enn boða þinn frið og bæt þú vor ráðlausu spjöll á jörðinni fögru svo fæðist á ný til fagnaðar náttúran öll. 5 Já, lát oss í náð fá að líta þitt tákn og leið oss í hlýðni og trú og kenn oss að meta og elska það allt í auðmýkt sem skapaðir þú.


T Svein Ellingsen 1977 – Sigurbjörn Einarsson – Sb. 1997
Alt liv er kalt frem på ditt skapande bud
L Ove K. Sundberg 1978 – Sb. 1997
Alt liv er kalt frem på ditt skapande bud

Eldra númer 705
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun 1. Mós. 1 og 1. Mós. 9.12–17

Uppáhalds sálmar

Under Construction