Sálmabók

459. Syngið Drottni, sól og máni

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Syngið Drottni, sól og máni, sérhvert ljós sem kveikir hann. Syngið Drottni, himnar háir, hljómi allt sem lofa kann. 2 Heiðrið Drottin, höfin jarðar, húmið, regnið, vindur, snær. Tignið Drottin, tré og steinar, tindar fjalla, ljúfur blær. 3 Lofið Drottin, hálsar, hæðir, hjarnið jökla, foss og lind. Lofa Drottin, fugl og fluga, fjallabúar, geit og kind. 4 Lofa Drottin, kristin kirkja, konung þinn í líki manns. Honum skulum vegsemd veita vernduð öll í faðmi hans.


T Anders Frostenson 1958 – Kristján Valur Ingólfsson 1971 – Sb. 1997
Lova Herren, sol och måne
L Hjálmar H. Ragnarsson 1995 – Sb. 1997

Eldra númer 706
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 148

Uppáhalds sálmar

Under Construction