Sálmabók

458. Í gegnum lífsins æðar allar

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Í gegnum lífsins æðar allar fer ástargeisli, Drottinn, þinn, í myrkrin út þín elska kallar og allur leiftrar geimurinn og máttug breytast myrkraból í morgunstjörnur, tungl og sól. 2 En skærast, Guð minn, skín og ljómar í skugga dauðans vera þín er röddin þinnar elsku ómar í endurleystri sálu mín og segir: Þú ert sonur minn, því sjá þú, ég er faðir þinn. 3 Og aldrei skilur önd mín betur að ertu Guð og faðir minn en þegar eftir villuvetur mig vermir aftur faðmur þinn og kærleiksljósið litla mitt fær líf og yl við hjarta þitt. 4 Lát undur þinnar ástar vekja upp elsku hreina' í hverri sál og öfund burt og hatur hrekja og heiftrækninnar slökkva bál. Lát börn þín verða í elsku eitt og elska þig, sinn föður, heitt.


T Matthías Jochumsson – Sb. 1886
L Georg Neumark, 1657 – PG 1861
Wer nur den lieben Gott lässt walten

Eldra númer 18a
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction