Sálmabók

457. Vort traust er allt á einum þér

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Vort traust er allt á einum þér, vor ástarfaðir mildi. Þín náð og miskunn eilíf er, það alla hugga skyldi. 2 Þú ert vor stoð og einkahlíf svo engu þurfum kvíða, vor huggun, athvarf, ljós og líf. Æ, ljúft er því að stríða. 3 Í hverju sem að höndum ber og hvað sem bágt oss mætir þín hjálp oss nálæg ætíð er og allar raunir bætir. 4 Þín forsjón vakir yfir oss, þín alvöld hönd oss leiðir, þú linar böl og léttir kross og lífsins meinum eyðir. 5 Þú græðir hjartans sviðasár, þú syndir fyrirgefur, þú stöðvar öll vor angurstár, þú alla náð umvefur. 6 Þín föðurnáð æ fersk og ný oss föðurgæðum seður og lífsins kjörum öllum í oss annast, blessar, gleður. 7 Vort traust er allt á einum þér því allt þú gott oss veitir. Þín náð og miskunn eilíf er, þú öllu' í sigur breytir.


T Páll Jónsson – Sb. 1871
L Wormodsen 1539 – Thomissøn 1569 – Gr. 1594
Gud Fader udi Himmerig / Lad vaje højt vort kongeflag

Eldra númer 10
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction