Sálmabók

456. Eilíf, dýrðleg, æðsta vera

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Eilíf, dýrðleg, æðsta vera, alvöld, heilög, rík af náð, þakkarfórn skal þér fram bera, þér, ó, Guð, sé lofgjörð tjáð. Mikill, góður einn þú ert, öll þín verk það segja bert. Þú einn ræður öllu yfir, allt þú blessar sem að lifir. 2 Þó mín dauðleg augu eigi auglit þitt nú sjái hér né þann ljómann líta megi, ljóssins Guð, er skín hjá þér, hjarta mitt samt þekkir þig, þig er veikan styrkir mig og sem faðir elskar, gleður, öllum náðargæðum seður. 3 Frá þér ljós og lífið streymir, líkn og blessun hvert eitt sinn. Mig þín föðurforsjón geymir, frelsar, annast, Drottinn minn. Þú mér vísar lífsins leið, léttir kross og heftir neyð, veitir mátt og megn að stríða mitt í freisting, hryggð og kvíða. 4 Gæsku þinnar geislar skína gjörvallt yfir ríki þitt, allt mér vottar elsku þína, í þér fagnar hjarta mitt. Allt sem lifir í þér gleðst og af þinni mildi seðst, allt sem lifir lof þér segi, lof þitt, faðir, aldrei þegi.


T Páll Jónsson – Vb. 1861
L Henrik Rung 1847 ̶ Ssb. 1936
Tag det sorte kors fra graven

Eldra númer 36
Eldra númer útskýring T

Uppáhalds sálmar

Under Construction