Sálmabók

454. Um heimaslóð og heiðloft blá

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Um heimaslóð og heiðloft blá minn hugur víða fer og alls staðar má eitthvað sjá sem unað vekur mér og vott um ást og visku þína ber. Ég heyri þig í haustsins stríða vindi, ég horfi á þína dýrð í vorsins yndi og fyrir allt ég þakka þér. 2 Ég heyri þig á hljóðri stund sem hvísl í næturblæ, ég sé þinn mátt í gróðurgrund sem grænkar undir snæ og aftur þér til dýrðar blóm sín ber. Ég heyri þig ... 3 Ég leita’ í kvöl og þröng til þín og þrjóti skilning minn þá andar þú á augu mín svo eitthvert ráð ég finn og brot af þinni visku veitist mér. Ég heyri þig ... 4 Ég styðst við þína styrku hönd á stuttri ævileið, á óttans för um ókunn lönd, við unað jafnt sem neyð þín ást og forsjá fylgir ávallt mér. Ég heyri þig ...


T Böðvar Guðmundsson 2009 – Vb. 2013
L Jón Hlöðver Áskelsson 2009 – Vb. 2013

Eldra númer 844
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction