Sálmabók

453. Festingin víða, hrein og há

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Festingin víða, hrein og há og himinbjörtu skýin blá og logandi hvelfing ljósum skírð, þið lofið skaparans miklu dýrð. Og þrautgóða sól er dag frá degi Drottins talar um máttarvegi, ávallt birtir þú öll um lönd almættisverk úr styrkri hönd. 2 Og þótt um helga þagnarleið þreyti vor jörð hið dimma skeið og enga rödd og ekkert hljóð uppheimaljósin sendi þjóð, skynsemi vorrar eyrum undir allar hljómar um næturstundir lofsöngur þeirra, ljóminn hreinn: Lifandi Drottinn skóp oss einn.


T Joseph Addison 1712 – Jónas Hallgrímsson um 1840 – Vb. 1933
The Spacious Firmament on High
L Atli Heimir Sveinsson 1986 – Sb. 1997

Eldra númer 28
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction