Sálmabók

452. Þín miskunn, ó, Guð

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Þín miskunn, ó, Guð, er sem himinninn há og hjarta þíns trúfestin blíða, þinn heilagan vísdóm má hvarvetna sjá um heims alla byggðina fríða. 2 Sem rammbyggðu fjöllin þín réttvísin er, sem reginhaf dómur þinn hreini. Vor Guð, allra þarfir þú glögglega sér og gleymir ei aumingjans kveini. 3 Já, dásöm er náð þín og dag sérhvern ný, ó, Drottinn, í skaut þitt vér flýjum. Vér hræðast ei þurfum í hælinu því er hörmunga dimmir af skýjum. 4 Ef sálirnar þyrstir, þú svölun þeim lér, þær saðning fá hungraðar frá þér. Vor Guð, þínu' í ljósinu ljós sjáum vér og lífsins er uppspretta hjá þér.


T Bernhard S. Ingemann 1845 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Til himlene rækker din miskundhed
L Johan P.E. Hartmann 1852 – JH 1885
Til himlene rækker din miskundhed

Eldra númer 23
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 36

Uppáhalds sálmar

Under Construction