Sálmabók

451. Ljúft er að finna ást af þínum anda

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Ljúft er að finna ást af þínum anda, ylinn sem gefur snerting þinna handa, lifa og vera þegn í sköpun þinni, þakklátur eiga stað í veröldinni. Örlátt er lífið og allt í kringum mig elskunnar gjafir sem vilja birta þig. 2 Vakinn til dagsins sé ég mína systur, sólina björtu, geislum hennar kysstur. Bróðir minn, máninn, vögguljósið lætur líknandi vefja þreyttum kyrrar nætur. Örlátt er lífið og allt í kringum mig elskunnar gjafir sem vilja birta þig. 3 Ást þína vil ég jarðarbörnum bera, bróðir og systir sköpuninni vera. Blómin og grösin verndarfaðmi fel ég, fagnandi undir himni þínum dvel ég. Örlátt er lífið og allt í kringum mig elskunnar gjafir sem vilja birta þig.


T Svavar A. Jónsson 2010
Canticle of the Sun (Laudes Creaturarum) / Fratello sole, sorella luna - Brother Sun, Sister Moon
L Riz Ortolani 1972
Fratello sole, sorella luna - Brother Sun, Sister Moon / Dolce sentire

Uppáhalds sálmar

Under Construction