Sálmabók

447. Upp, skapað allt í heimi hér

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Upp, skapað allt í heimi hér, að heiðra Guð, vorn Drottin, hið minnsta verk hans mikið er, um mátt hans allt ber vottinn. 2 Þótt kóngar fylgdust allir að með auð og veldi háu, þeir megnuðu' ei hið minnsta blað að mynda' á blómi smáu. 3 Hvað get ég sagt? Ó, málið mitt ei megnar, Guð, að lýsa hve margt er ástarundur þitt, hve öflug stjórnin vísa. 4 Ó, miklið Guð, þér menn á jörð, á málum óteljandi, ó, mikla Guð, þú hólpin hjörð, á himna dýrðarlandi.


T Hans A. Brorson 1734 ̶ Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Op al den ting som Guð har gjort
L Prag 1595 – Praetorius 1610 – Laub 1888 – Vb. 1991
Mein erst Gefühl sei Preis und Dank

Eldra númer 34
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Lúk.12.22–28

Uppáhalds sálmar

Under Construction