Sálmabók

446. Sé Drottni lof og dýrð

Trúarlífið - Sköpun Guðs og ábyrgð manns

hymn notes
1 Sé Drottni lof og dýrð, hans dásemd öllum skýrð, hann lofi englar allir og æðstu ljóssins hallir, hann lofi hnatta hjólin og heiðri tungl og sólin. 2 Hann lofi líf og hel og loftsins bjarta hvel, hann lofi lögmál tíða sem ljúft hans boði hlýða og sýna veldis vottinn, ó, veröld, lofa Drottin. 3 Þér vötn og víður sjór, þér vindar, hagl og snjór, þér fjallabyggðir bláar, þér bjarkir prýði háar, þú grund með grösum sprottin, ó, göfgið, lofið Drottin. 4 Þér lands og lagar dýr og loftsins skarinn hýr, þér ernir ofar foldu, þér ormar djúpt í moldu, hans gæsku gefið vottinn og göfgið, lofið Drottin. 5 Hver þjóð um lög og láð, ó, lofið Drottins náð, þér glöðu, hraustu, háu, þér hrelldu, veiku, lágu, þér öldnu með þeim ungu, upp, upp með lof á tungu. 6 Með öllum heimsins her þig, Herra, lofum vér af innsta ástar grunni með öndu, raust og munni. Vort hjarta bljúgt sig hneigir og hallelúja segir.


T Jón Þorsteinsson – Sb. 1671 – Matthías Jochumsson – Sb. 1886
L Jacob Regnart 1574 – Vulpius 1609 – Schein 1627 – Sb. 1619
Auf meinen lieben Gott

Eldra númer 1
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 148

Uppáhalds sálmar

Under Construction