Sálmabók

442. Láttu nú ljósið þitt

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt, hafðu þar sess og sæti, signaði Jesú mæti. 2 Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni, sjálfur vaktu þar inni. 3 Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. 4 Eg fel minn allan hag einum þér nótt sem dag, ljósið af ljósi þínu lifi í hjarta mínu.


T Höf. ók. v. 1 – Vb. 1933 – Sigurbjörn Einarsson 2003 v. 2–4 – Vb. 2013
L Kirstín Erna Blöndal 2003 – Vb. 2013

Eldra númer 943
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction