Sálmabók

423. Endar nú dagur

Guðsþjónustan - Morgunn og kvöld

hymn notes
1 Endar nú dagur en nótt er nær, náð þinni lof ég segi að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. 2 Verkin mín öll og vinnulag velþóknan hjá þér finni en vonskan sú sem vann ég í dag veri gleymd miskunn þinni. 3 Þó augun sofni aftur hér í þér mín sálin vaki. Guðs son, Jesú, haf gát á mér, geym mín svo ekkert saki. 4 Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni.


T Sigurður Jónsson í Presthólum – Sb. 1772
L Hörður Áskelsson 1999
Endar nú dagur

Eldra númer 465
Eldra númer útskýring T+L

Uppáhalds sálmar

Under Construction